Samfylkingin leggur til að veittur verði tímabundinn skattafsláttur þegar einstaklingar koma aftur til starfa eftir atvinnuleysi. Nánar tiltekið tvöfaldan persónuafslátt í jafn marga mánuði og einstaklingur var atvinnulaus.
Þessu er ætlað að koma til móts við heimili sem hafa orðið fyrir miklu tekjufalli og þurft að ganga á sjóði sína eða safna skuldum og einstaklingum gert kleift að vinna sig hraðar upp.
Tillagan er hluti af pakka sem Samfylkingin kynnti í dag sem sínar tillögur að efnahagsaðgerðum til að tryggja viðspyrnu atvinnulífsins.
Samfylkingin metur kostnað við viðbótarúrræðin sem lögð eru til ígildi 3% atvinnuleysis eða 18 milljarða króna.
Einnig er lagt til að lágmarksatvinnuleysisbætur verði hækkaðar upp í það sem nemur 95% af lágmarkstekjutryggingu og að atvinnuleysisbótatímabil verði lengt um 12 mánuði.
Þá er lagt til að fyrirtækjum verði gert kleift að ráða nýútskrifaða einstaklinga úr háskóla- og iðnnámi til starfa á ráðningarstyrk til sex mánaða.
„Aðgerðir Samfylkingarinnar eru til þess fallnar að tryggja að samfélagið rati í réttan farveginn í sumar og frjórri jarðvegur verði til staðar fyrir nýja ríkisstjórn að byggja á eftir næstu kosningar,“ sagði Logi Einarsson, við kynningu tillagnanna.
Fimmta tillagan var að festa í sessi tímabundna hækkun endurgreiðslna á rannsóknar- og þróunarkostnaði og auka framlög til Tækniþróunarsjóðs svo öll framúrskarandi verkefni hljóti styrk.
Síðast er lagt til að listafólk verði styrkt í sumar til að halda viðburði um allt land. Komið verði upp miðlægu og hraðvirku umsóknarferli þar sem listafólk og samkomustaðir geti sótt um styrki til viðburðahalds.