Sæbraut verður lokað fyrir umferð frá kl. 10.30-14.00 á morgun. Ástæðan er Víðavangshlaup ÍR, sem haldið er í 106. skipti, en hlaupið er jafnframt meistaramót í 5 km götuhlaupi.
Hlaupið verður ræst kl. 12 á Sæbraut, gegnt Hörpu, og af þessum sökum verða takmarkanir á umferð um Sæbrautina frá kl. 10.30 og þar til hlaupi lýkur.
Hlaupið verður eftir syðri akrein Sæbrautur, austur að gatnamótum við Kringlumýrarbraut, beygt inn á Kringlumýrarbraut og tekinn snúningur til baka í átt að Sæbraut að gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns.
Sæbrautin verður þá hlaupin áfram til austurs að Kirkjusandi þar sem tekinn er snúningur á nyrðri akreinina og hún hlaupin til baka áfram í mark, að því er segir í tilkynningu.
„Víðavangshlaup ÍR hefur í rúma öld farið fram á sumardaginn fyrsta. Víðavangshlaup ÍR var fyrst haldið árið 1916 og hefur síðan þá verið órjúfanlegur þáttur í hátíðarhöldum Reykjavíkurborgar og á enginn íþróttaviðburður hér á landi á jafn langa samfellda sögu og Víðavangshlaup ÍR,“ segir þar.
Bent er á að dregið hafi verið úr allri umgjörð hlaupsins til þess að lágmarka viðveru keppenda á keppnisstað og þeir hvattir til að yfirgefa keppnisstað fljótlega eftir að í mark er komið. Leiðbeiningar hafi verið sendar á alla skráða þátttakendur um tilhögun á rás- og endamarki.
Úrslit verða birt í rauntíma á timataka.net/. Vakin er athygli á að þar sem ræst er í nokkrum ráshópum þá eru fyrstu úrslit birt með fyrirvara um breytingar.