Eftir að þriðja leiguþyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, kom til landsins í síðustu viku er ekki lengur pláss fyrir öll loftför Gæslunnar í flugskýli hennar á Reykjavíkurflugvelli.
Gæslan er nú með þrjár þyrlur af gerðinni Airbus Helicopters og eina flugvél af gerðinni Dash-8 Q300.
Dómsmálaráðuneytið sendi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur bréf í júlí 2018 þar sem vakin var athygli á þeirri stöðu sem kæmi upp þegar Gæslan hefði endurnýjað flugflotann með nýjum þyrlum. Farið var fram á að skipulagsyfirvöld mótuðu tillögu til framtíðar um staðsetningu þyrlusveitarinnar til framtíðar.
Tillögur hafa ekki komið enn frá borgaryfirvöldum, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.