Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent er á hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218.
Það var í apríl árið 2015 að reiðarslag dundi yfir fjölskyldu Sigurbjargar Söru Bergsdóttur þegar fyrrverandi maður hennar og faðir barnanna svipti sig lífi. Sigurbjörg og börnin hennar þrjú hafa farið í gegnum langt og strangt ferli til að læra að lifa með sorg og söknuði.
Sex árum síðar hefur hún gert heimildarmyndina Þögul tár um sjálfsvíg. Það er hennar leið til að leggja lóð á vogarskálarnar í baráttunni en hún telur nauðsynlegt að opna á umræðuna um sjálfsvíg og ber hún þá von í brjósti að myndin hafi forvarnargildi.
„Hann var vandaður og góður maður; hafði verið afreksmaður í íþróttum. Við skildum árið 2013 í góðu og það var gott á milli okkar. Ég átti ekki von á þessu. Þetta var algjört áfall og nokkuð sem maður myndi aldrei trúa að maður myndi upplifa,“ segir Sigurbjörg en saman áttu þau tvö börn og fyrir átti hún dreng sem Halldór hafði gengið í föðurstað.
„Halldór átti sér enga sögu um þunglyndi. Þetta gerðist áður en maður heyrði orðið brosþunglyndi,“ segir Sigurbjörg sem ræðir við Ásdísi Ásgeirsdóttur, blaðamann Sunnudagsblaðsins, í Dagmálsþætti dagsins en jafnframt birtist umfjöllun Ásdísar í helgarútgáfu Morgunblaðsins.
Hér að ofan má sjá brot úr viðtalinu en Dagmál eru aðgengileg áskrifendum Morgunblaðsins hér. Einnig er hægt að kaupa vikupassa hér.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent er á hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218.