Icelandair hefur bætt við tveimur flugferðum til og frá Tenerife um næstu jól, milli 22. desember og 4. janúar vegna eftirspurnar. Félagið hóf áætlunarflug til Tenerife fyrr í mánuðinum.
Þetta segir Áslaug Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, við mbl.is.
Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Vita, sagði við Morgunblaðið í fyrradag að hann fyndi fyrir auknum áhuga hjá Íslendingum sem vilja ferðast til útlanda á næstu misserum og segir hann áhugann hafa aukist síðustu daga og vikur með aukinni bólusetningu gegn Covid-19.
Þráinn bendir á að í gærmorgun hafi breiðþota á vegum Vita flogið með 260 farþega til Alicante og þá hafi þurft að stækka vélina með aukinni eftirspurn.
„Ég held að þegar fólk sér fram á að það verði bólusett eða er búið að fá bólusetningu þá er það tilbúið til þess að plana sumarið,“ segir Þráinn og bendir á að fólk geti einnig breytt ferðunum sínum hjá Vita með stuttum fyrirvara án þess að þurfa að borga fyrir það og þá þurfi fólk ekki að taka neina áhættu.
Þá sagði Þórunn Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, sömuleiðis að hún fyndi fyrir auknum áhuga. Hún segir að selst hafi upp í ferðir sem auglýstar voru með ferðaskrifstofunni um jólin og því hafi verið bætt í. Jafnframt segir hún að sé mikill áhugi fyrir ferðum til Tenerife og Alicante.
„Fólk er að tryggja sér sæti í jóla- og áramótaferðirnar snemma. Þær eru alltaf vinsælar og sætaframboð hefur verið takmarkað undanfarin ár,“ segir Þórunn.