Endurnýja 34 möstur í Kolviðarhólslínu

Núverandi Kolviðarhólslína er gömul og úr sér gengin og mun …
Núverandi Kolviðarhólslína er gömul og úr sér gengin og mun víkja. Ljósmynd/Aðsend

Landsnet áformar að endurnýja Kolviðarhólslínu 1 sem liggur á milli tengivirkjanna á Kolviðarhóli við Hellisheiðarvirkjun og Geithálsi ofan Reykjavíkur og var áður hluti af Búrfellslínu 3. Tilgangurinn er að auka flutningsgetu línunnar inn á höfuðborgarsvæðið og Suðurnes. Skipulagsstofnun telur að framkvæmdin hafi ekki umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér og ekki þurfi að gera mat á umhverfisáhrifum.

Endurnýja þarf línuna á 13 kílómetra kafla. Koma þarf fyrir sverari leiðurum sem núverandi möstur bera ekki. Þegar tengivirki var byggt á Kolviðarhóli var endamastrið endurnýjað og fjögur burðarmöstur á um tveggja kílómetra kafla. Þau verða látin standa en 34 möstur endurnýjuð og byggð á þeim undirstöðum sem fyrir eru.

Gömlu möstrin verða felld og bútuð niður á staðnum og síðan flutt í burtu og sett í endurvinnslu. Notaðar verða sömu vinnuvélar við að reisa nýju möstrin.

Áfram stálgrindarmöstur

Nýju möstrin verða svokölluð M-stálgrindarmöstur með svipuðu útliti og þau möstur sem búið var að skipta um. Ekki þykir skynsamlegt að setja upp stálröramöstur eins og eru í flestum nýjum háspennulínum Landsnets vegna þess að til þess að nýta undirstöðurnar þurfa nýju möstrin að vera svipuð þeim gömlu að stærð og styrk.

Endurnýjun Kolviðarhólslínu 1 er ekki á framkvæmdaáætlun. Landsnet hefur hug á að ráðast í verkefnið á árinu 2024, samkvæmt upplýsingum Steinunnar Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa.

Línan liggur að hluta til á vatnsverndarsvæði. Landsnet mun láta gera áhættugreiningu með tilliti til vatnsverndar í samráði við heilbrigðiseftirlit.

Heilbrigðiseftirlitin á höfuðborgarsvæðinu óskuðu eftir frekari upplýsingum um sinkhúð nýju mastranna og möguleg áhrif mengunar á gróður og neysluvatn vegna flögnunar sinkhúðar mastranna. Það er væntanlega gert í ljósi tæringar sem sést á yfirborði mastra í þessari bráðum fimmtugu háspennulínu og Landsnet rekur til útblásturs frá Hellisheiðarvirkjun. Áhættugreining Landsnets mun taka til mögulegrar mengunar af völdum sinks og hvort tilefni sé til að vakta hana.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert