Hægt miðar í sjómannadeilum

Frá Grindavíkurhöfn.
Frá Grindavíkurhöfn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lítið hefur miðað á sáttafundum í kjaraviðræðum Sjómannasambands Íslands við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og litlar líkur nú taldar á að takast muni að ljúka samningum fyrir sjómannadaginn eins og vonir stóðu til fyrir nokkrum vikum.

,,Það er mjög lítil hreyfing. Það er bara verið að fara yfir helstu málin í samtölum og svo hafa menn unnið í undirhópum á milli fundanna, saman og hver í sínu lagi,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. „Við ætluðum að vera búnir fyrir sjómannadag en mér líst ekki á það. Það verður ekki fundur fyrr en á miðvikudaginn í næstu viku.“

Aðspurður segir Valmundur að viðræðurnar séu ekki komnar á það stig að farið sé að ræða aðgerðir til að þrýsta á um gerð samninga.

Svipaða sögu er að segja af gangi viðræðna Sjómannafélags Íslands, VM og Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur sem eru í samfloti í kjaraviðræðum við SFS en félögin hafa líkt og SÍ og Félag skipstjórnarmanna vísað yfirstandandi deilu til ríkissáttasemjara fyrir nokkru.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert