Guðrún Inga Sívertsen hefur verið ráðin nýr skólastjóri Verzlunarskóla Íslands og tekur hún við af Inga Ólafssyni sem kveður skólann eftir 14 ár í starfi. Eru þetta mikil tímamót í 116 ára sögu Verzló enda fyrsta skipti sem kona gegnir starfi skólastjóra. Jafnframt er Guðrún Inga fyrsti verzlingurinn til að sinna þessu starfi.
„Það er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna um ráðningu Guðrúnar Ingu og með hana við stjórnvölinn getum við ekki annað en verið bjartsýn á framtíð skólans. Ég hlakka mikið til samstarfsins við hana, enda er Guðrún Inga gríðarlega öflugur leiðtogi, með skýra framtíðarsýn og því kjörin til að viðhalda og efla það öfluga starf sem unnið hefur verið innan skólans og gert hann að leiðandi framhaldsskóla hér á landi,“ segir Bryndís Hrafnkelsdóttir, formaður skólanefndar Verzlunarskóla Íslands, í tilkynningu.
Guðrún Inga er 45 ára gömul en hún útskrifaðist sem stúdent af hagfræðibraut Verzlunarskóla Íslands árið 1997. Hún lauk BA prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands, er með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu og diplómanám í kennslufræði frá sama skóla og er að ljúka AMP námi frá IESE háskólanum í Barcelona á Spáni.
„Verzlunarskóla Íslands þekki ég vel, bæði sem starfsmaður og fyrrum nemandi, og ber sterkar taugar til hans. Ég hlakka mikið til að taka við starfinu af Inga sem hefur leitt skólann í gegnum miklar breytingar og verið frábær skólastjóri. Nú er það mitt hlutverk að taka við keflinu í síbreytilegu og krefjandi umhverfi og að halda Verzlunarskólanum áfram í fremstu röð og undirbúa nemendur hans sem best fyrir lífið framundan. Við skólann starfar framúrskarandi starfsfólk og það verður ánægjulegt að stilla saman strengi okkar allra við að setja skólanum skýra framtíðarsýn og takast saman á við áskoranir sem bíða skólans,“ segir Guðrún Inga Sívertsen, nýr skólastjóri Verzlunarskóla Íslands í fréttatilkynningu frá skólanum.
Í Verzlunarskóla Íslands er lögð áhersla á viðskiptamenntun en skólann sækja 1.050 nemendur í dagskóla og 1.400 nemendur eru í fjarnámi.