Hraun er farið að renna yfir eystri varnargarðinn á Fagradalsfjalli. Varnargarðinum var komið upp til þess að hamla hraunstraumi í Nátthaga.
Á vefmyndavél RÚV, sem horfir til norðurs yfir eldgosið frá Langahrygg, má sjá hvar hraun hefur farið yfir garðinn.
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, sagði í samtali við mbl.is á föstudag að tilraunir á varnargörðum séu mikilvægar. Þrátt fyrir það taldi hann þá ekki líklega til að skila miklum árangri ef engin breyting yrði á gosinu.
„Ef gosið heldur áfram í einhvern tíma eða einhverjar vikur skipta garðarnir engu máli,“ sagði Magnús.
Í tilkynningu almannavarnadeildar frá því á föstudag segir að með framkvæmdinni hafi því verið seinkað að hraun renni í Nátthaga og nái þannig seinna að ljósleiðara sem þar liggur og að Suðurstrandavegi. Í gær stóð til að ljúka við gerð vestari varnargarðsins og unnið var að því að hækka eystri garðinn upp í átta metra, en það var háð því að hraunrennsli hefði náð jafnvægi og yfirborð storknað.
Fréttin hefur verið uppfærð.