Tveir miðahafar höfðu heppnina með sér í lottóútdrætti kvöldsins og unnu rúmar 660 þúsund krónur hvor, en um annan vinning var að ræða. Fyrsti vinningur gekk ekki út í kvöld.
Miðarnir tveir voru keyptir í Olís á Siglufirði og Hagkaupum á Akureyri.
Fjórir unnu í jókernum og fékk hver þeirra 100 þúsund krónur. Af þeim var einn miði keyptur í Ungó, Reykjansbæ, en þrír vinningshafanna voru í áskrift.