Fjallgöngumennirnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson eru alveg að verða komnir á topp Everest.
„Bara rétt um 100 strembnir metrar eftir! Allir að hugsa stíft til strákanna núna, þetta er alveg að takast,“ segir á facebooksíðu Með Umhyggju á Everest.
Heimir og Sigurður lögðu af stað á toppinn um klukkan þrjú í dag.