Fjallgöngumennirnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson eru nú komnir í aðrar búðir á leið sinni niður af tindi Everest. Aðrar búðir eru í 6.405 metra hæð.
Tvíeykið fer næst niður í búðir eitt og þaðan niður í grunnbúðir.