Friðrik nýr formaður BHM

Friðrik Jónsson, nýr formaður BHM.
Friðrik Jónsson, nýr formaður BHM. Ljósmynd/Aðsend

Friðrik Jónsson hefur verið kjörinn nýr formaður Bandalags háskólamanna til tveggja ára. Rafrænni kosningu um formannsembættið lauk nú í hádeginu og hlaut Friðrik 69,5% atkvæða, en Maríanna H. Helgadóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, sem einnig bauð sig fram í embættið, hlaut 30,5% atkvæða.

Formaður BHM er kjörinn annað hvert ár í aðdraganda aðalfundar, en það eru aðalfundarfulltrúar sem velja formann. Í tilkynningu frá BHM kemur fram að 187 af 189 aðalfundarfulltrúum á kjörskrá hafi tekið þátt í kjörinu.

Friðrik Jónsson er fæddur árið 1967 og hefur undanfarin 25 ár starfað innan utanríkisþjónustu Íslands. Meðal annars hefur hann starfað á vettvangi Alþjóðabankans, Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna og í sendiráðum Íslands í Washington og Kaupmannahöfn. Hann hefur einnig verið forstöðumaður GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, og fulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins. Friðrik er með MA-gráðu í alþjóðasamskiptum og MBA-gráðu í alþjóðaviðskiptum. Hann var kjörinn formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins á aðalfundi félagsins síðastliðið haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert