„Ég horfi á þetta sem áfangasigur,“ segir Ingólfur Örn Friðriksson en eins og kom fram í frétt mbl.is í gær hefur Héraðsdómur Reykjavíkur ógilt úrskurð mannanafnanefndar sem hafði hafnað því að Ingólfur fengi nafnið Lúsífer skráð sem millinafn.
Var niðurstaða nefndarinnar byggð á þeim forsendum að nafnið sé eitt af nöfnum djöfulsins og þar með „ljóst að það geti orðið nafnbera til ama.“
Ingólfur segir jákvætt hvernig héraðsdómur hefur tekið á málinu. „Að ekki sé hægt að nota trúarlegar ástæður til þess að hafna nafni, það er náttúrulega sigur út af fyrir sig.“ Þá segir hann einnig að í raun ætti þetta ekki að vera sigur og að það ætti að vera augljóst að ekki sé í lagi að nota trúarlegar ástæður til þess að hafna nafni.
„Þetta er aðeins áfangasigur, þar sem ég fékk ekki allt sem ég vildi,“ segir Ingólfur. „Það vonandi kemur bara.”
Þá segir hann næstu skref að sækja aftur um hjá mannanafnanefnd og láta dóminn fylgja með, þá með sömu rökum og hann lagði fram seinast. „Ég hugsa að ég fari bara í það fljótlega að sækja aftur um, jafnvel bara í þessari viku eða næstu.“