Stakk sér til sunds með súpuþyrstum víkingum

Nýsköpunarvika, sem fjölmörg fyrirtæki og stofnanir koma að, stendur yfir. Í tilefni þess bauð sprotafyrirtækið Feed the Viking í sjósund og súpu í Nauthólsvíkinni.

Meðal þeirra sem stungu sér til sunds var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og virðist hann ekki hafa látið neinn bilbug á sér finna.

Hér sést hann ásamt Eddu Konráðsdóttur, einum stofnanda Nýsköpunarviku, alsæll á leiðinni aftur í land.

Í upphaflegri útgáfu sagði að Nýsköpunarvikunni lyki um helgina. Hið rétta er að hún stendur fram á miðvikudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert