Tvíburasystur dúx og semidúx

Tvíburasysturnar Sigurbjörg Erla og Guðbjörg Viðja Pétursdætur Biering sköruðu fram …
Tvíburasysturnar Sigurbjörg Erla og Guðbjörg Viðja Pétursdætur Biering sköruðu fram úr. Ljósmynd/Íris Mjöll Ólafsdóttir

Tvíburasysturnar Sigurbjörg Erla og Guðbjörg Viðja Pétursdætur Biering voru dúx og semidúx Menntaskólans í Kópavogi. Sigurbjörg útskrifaðist með einkunnina 9,89 en Guðbjörg 9,7. Árangur Sigurbjargar er sá besti í sögu skólans. 

Brautskráning frá Menntaskólanum í Kópavogi fór fram í gær hinn 28. maí. Alls voru útskrifaði 57 stúdentar, 9 með lokapróf í bakstri, 11 í framreiðslu og 22 í matreiðslu. Sveinsprófin eru framundan hjá verknámsnemum. 

Í útskriftarræðu vakti skólameistari, Guðríður Eldey Arnardóttir, athygli á mikilvægi nýrra laga um háskóla þar sem lokapróf í iðngrein hefur nú jafna stöðu og stúdentsprófið sem inntökuviðmið í nám á háskólastigi. „Þetta þýðir það að standi hugur nemenda að loknum grunnskóla til verknáms getur viðkomandi óhræddur klárað sitt fagnám vitandi það að fagprófið hans gildir til jafns við stúdentsprófið.“

Egill Orri Elvarsson, nýstúdent, og Jakob H. P. Burgel Ingvarsson, bakari, fluttu ávörp fyrir hönd útskriftarnema og veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur. Nisarat Sengthong Bjarnadóttir fékk verðlaun fyrir hæsta meðaleinkunn á lokaprófi í matreiðslu.

Nýstúdentar með viðurkenningar.
Nýstúdentar með viðurkenningar. Ljósmynd/Íris Mjöll Ólafsdóttir

Hátt í 50 iðnmeistarar útskrifaðir

Þetta var ekki eina útskriftarathöfnin hjá MK í vikunni en hinn 27. maí voru nemendur í kvöld- og fullorðnisnámi brautskráðir. Þar voru útskrifaði 49 iðnmeistarar, 10 matsveinar, 27 leiðsögumenn og 5 ferðaráðgjafar.

Valgerður Ingibjörg Hafstað flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema í ferðagreinum og Helga Haraldsdóttir mælti fyrir hönd útskriftarnema í matvælagreinum.

Verknámsnemar með viðurkenningar.
Verknámsnemar með viðurkenningar. Ljósmynd/Íris Mjöll Ólafsdóttir
Fimm ferðaráðgjafar útskrifuðust frá MK í gær.
Fimm ferðaráðgjafar útskrifuðust frá MK í gær. Ljósmynd/Íris Mjöll Ólafsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert