Andlát eftir slys í Patreksfirði

Karlmaður á miðjum aldri var úrskurðaður látinn á Landspítala í dag, eftir að hafa lent í miklum straumi í hyl undir fossi í Patreksfirði.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum segir að slysið hafi orðið í Ósá, fyrir botni fjarðarins, undir Svuntufossi.

Tilkynningin hafi borist Neyðarlínunni klukkan 11.19 fyrir hádegi í dag.

Hófu þegar endurlífgun

„Lögregla, sjúkralið og björgunarsveit fóru þá þegar á vettvang, auk þess sem þyrla LHG var kölluð til. Þarna hafði maður á miðjum aldri ætlað að fara út í hyl undir fossi sem Svuntufoss heitir. Mikill straumur reyndist í hylnum og virðist maðurinn hafa misst fótanna og lent í sjálfheldu í straumnum og fest um stund þar til nærstaddir komu honum til hjálpar,“ segir í tilkynningu lögreglu.

„Hann hafði þá misst meðvitund. Þeir sem voru á staðnum hófu þegar endurlífgun og var þeim tilraunum haldið áfram allt þar til maðurinn hafði verið fluttur með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík, þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Rannsókn á tildrögum þessa slyss er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum. Ótímabært er að greina frá nafni mannsins að svo stöddu en fjölskyldu hans hefur verið tilkynnt um atburðinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert