Alls verða um 24 þúsund einstaklingar bólusettir hér á landi í vikunni. Tæplega 92 þúsund landsmenn eru fullbólusettir.
Samtals fá um 14 þúsund bóluefni Pfizer, 9 þúsund fá fyrri bólusetningu en 5 þúsund fá seinni bólusetningu.
Um 5.500 fá bóluefni frá Moderna, þar af 4 þúsund fyrri bólusetninguna. 1.500 skömmtum af AstraZeneca verður dreift á landsbyggðina fyrir seinni bólusetningu og 2.400 fá bólusetningu með bóluefni Janssen.
Handahófskenndar boðanir í bólusetningar hefjast á nokkrum bólusetningarstöðum í vikunni en hver heilbrigðisstofnun mun draga út röð árganga og boða. Það ræðst að framboði bóluefna hve hratt gengur á röðina að því er segir á vef embættis landlæknis.