Ekkert smit í gær

Frá sýnatöku fyrir Covid-19.
Frá sýnatöku fyrir Covid-19. mbl.is/Árni Sæberg

Hvorki greindist kórónuveirusmit innanlands í gær né við landamærin. 

Þeim sem eru í sóttkví fækkar nokkuð eða um 108.

232 eru nú í sóttkví og 1.576 í skimunarsóttkví. 

Þá fækkar þeim sem eru í einangrun um tvo og eru nú 39 í einangrun með Covid-19.

Fjórtán daga nýgengi innanlandssmita helst óbreytt í 7,9 en nýgengi landamærasmita lækkar úr 2,7 í 2,2.

Tveir liggja nú á sjúkrahúsi með Covid-19 en aðeins einn lá á sjúkrahúsi fyrir helgi. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert