„Málið er grafalvarlegt og grefur augljóslega undan trausti í samskiptum þessara miklu vina- og bandalagsþjóða,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í svari sínu við óundirbúinni fyrirspurn á Alþingi í dag. „Utanríkisráðuneytið hefur krafist skýringa frá Dönum og komið áhyggjum og vonbrigðum skýrt á framfæri.“
Eins og mbl.is greindi frá í gærkvöldi hefur komið fram að leyniþjónusta Danmerkur hjálpaði bandarísku þjóðaröryggisstofnuninni NSA að njósna um leiðtoga í Evrópu, þar á meðal leiðtoga Þýskalands þau Angelu Merkel kanslara og Frank-Walter Steinmeier forseta.
„Þetta er háttsemi sem að Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt mjög þegar kemur að pólitískum andstæðingum þeirra, við hljótum að gagnrýna þetta sama hver á í hlut,“ sagði Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri Grænna, í fyrirspurn sinni á Alþingi í dag.
Kolbeinn sagði einnig að fregnirnar sýna að það þurfi oftast ekki að leita langt yfir skammt, að það geta alveg eins verið okkar helstu vinir og bandamenn sem eiga í hlut þegar að slíkum málum kemur. Þá spurði hann Guðlaug Þór hvort hann hafi áhyggjur af þessum fregnum og hvort hann telji þörf á einhverjum sérstökum viðbrögðum vegna málsins. Þá spurði hann sömuleiðis hvort að hann telji að þetta sé eitthvað sem gæti komið upp hér á landi.
Guðlaugur segir að ráðuneytið krefjist þess að Danir upplýsi hvort þessar njósnir hafi beinst að íslenskum hagsmunum, þar með töldum íslenskum stjórnmálamönnum, embættismönnum, stofnunum, fyrirtækjum eða einstaklingum hér á landi.
„Traust og trúnaður eru lykilþættir í samskiptum vinaríkja, mál á borð við þetta geta grafið undan slíku trausti. Það er nokkuð sem við þurfum ekki á að halda á tímum fjölþáttaógna,“ sagði Guðlaugur. „Því miður eru ríki sem hafa beinlínis hag af því að grafa undan trausti og samstöðu vina- og bandalagsríkja á vesturlöndum.“
Kolbeinn spurði hvort að áhyggjum hefðu sömuleiðis verið komið á framfæri við Bandaríkjamenn og hvort að þetta sé mál sem þurfi mögulega að ræða t.d. á leiðtogafundi NATÓ. „Auðvitað skiptir engu hvaða bandamenn okkar eiga í hlut en það var litið sérstaklega til þess að þar sem að við erum í miklu samstarfi þegar kemur að þessum málum við bandalags- og vinaþjóð okkar Dani,“ sagði Guðlaugur. „Þessi mál undirstrika mikilvægi þess að netöryggis- og netvarnarmál séu tekin föstum tökum og það er nokkuð sem ég hef lagt sérstaka áherslu á sem utanríkiráðherra.“