Kara Guðrún Melstað er látin. Hún lést á heimili sínu mánudaginn 31. maí í faðmi fjölskyldunnar. Kara var 61 árs og hafði glímt við veikindi síðustu ár.
Kara Guðrún starfaði áður sem kennari á Akureyri en hefur verið búsett í Þýskalandi um árabil ásamt eiginmanni sínum, Alfreð Gíslasyni, landsliðsþjálfara Þýskalands í handknattleik.
Börn Köru og Alfreðs eru Elfar, Aðalheiður og Andri.
Greint er frá andláti Köru Guðrúnar á Akureyri.net.