Undirritaður hefur verið stofnanasamningur vegna leikara og dansara við Þjóðleikhúsið. Samningurinn var unninn í samvinnu Félags íslenskra leikara og sviðslistafólks, Leikarafélags Íslands og Þjóðleikhússins.
„Í fyrsta skipti í sögu stofnanaleikhúsa á Íslandi hafa laun og réttindi dansara verið jöfnuð á við laun og réttindi leikara. Þetta er mikið og stórt framfaraskref í átt til aukins jafnréttis og þar með hefur margra ára baráttumáli Félags íslenskra leikara og Leikarafélags Íslands nú verið siglt í höfn með nýjum stjórnendum Þjóðleikhússins,“ segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.
Þar kemur fram að búið sé að aðlaga samninginn að nútímastarfsumhverfi og „metnaðarfullum áformum um enn öflugra og opnara Þjóðleikhús til framtíðar. Opnað er fyrir nýjar vinnuaðferðir, aukinn sveigjanleika, aukið samstarf og frumkvæði starfsfólks í húsinu.“