Ekið á mann á hlaupahjóli

Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Rétt fyrir klukkan sex í morgun var ekið á mann á hlaupahjóli í miðborg Reykjavíkur, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Í ljós kom að maðurinn var í annarlegu ástandi að sögn lögreglu, og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Hann slasaðist hins vegar ekki alvarlega sem betur fer. 

Í gærmorgun var tilkynnt um annað slys á hlaupahjóli í borginni en þá hrasaði stúlka og hlaut skurð á höfði. Það er því vissara að fara að öllu með gát á hlaupahjólum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert