„Ég veit hvaða vika er hjá ráðherranum,“ segir Pawel Bartoszek formaður skipulagsráðs borgarinnar, inntur eftir viðbrögðum hans við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um að hún muni óska eftir framkvæmdaleyfi til að endurbæta og stækka flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli.
Áslaug Arna sagði í samtali við Morgunblaðið í dag að það þyldi enga bið að endurbæta og stækka skýli Gæslunnar og að búið væri að tryggja úrbótunum fulla fjármögnun. Afstaða Reykjavíkurborgar hefur hins vegar verið sú að framtíðaruppbyggingu Gæslunnar ætti að beina annað en að Reykjavíkurflugvelli.
Nokkur umræða hefur verið um aðstöðuna eftir að þriðja þyrlan bættist í flugflotann um miðjan mánuð, en við það rúmar skýlið ekki öll loftför Gæslunnar.
„Það er okkar afstaða að þessi staðsetning [Reykjavíkurflugvöllur, innskot blaðamanns] sé ekki framtíðaruppbyggingarstaðsetning fyrir Landhelgisgæsluna. Það hafa verið nefndar nokkrar staðsetningar í þeim efnum, margir hafa talað um Suðurnesin lengi og svo er náttúrulega umræða um Hvassahraun sem gæti spilað þarna inn í,“ segir Pawel.
„Við tökum auðvitað bara faglega ákvörðun ef það kemur umsókn um framkvæmdaleyfi. En ég ítreka þá skoðun mína að það er augljóst að til lengdar þá eru langtíma stækkunarmöguleikar og uppbyggingarmöguleikar fyrir Landhelgisgæsluna alveg örugglega betri á öðrum stað á suðvesturhorninu heldur en akkúrat þarna þar sem við fyrirhugum nýja og glæsilega íbúabyggð samkvæmt aðalskipulagi.“