Eitt smit og sá var í sóttkví

Allir þeir sem koma til landsins þurfa að fara í …
Allir þeir sem koma til landsins þurfa að fara í skimun vegna Covid-19. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn greindist með kórónuveiruna í gær og var sá í sóttkví. Einn greindist með veiruna við seinni skimun á landamærunum í gær. Einn bíður niðurstöðu mótefnamælingar á landamærunum. 

Alls voru tekin 1.423 sýni innanlands í gær og 1.276 á landamærunum. Nú eru 45 í einangrun og 163 í sóttkví. Í skimunarsóttkví eru 1.648.

Ný­gengi inn­an­lands á hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær vik­urn­ar er 8,7 og 2,7 á landa­mær­un­um. 

Eitt barn yngra en eins árs er með Covid á Íslandi og tvö börn á aldr­in­um 1-5 ára. Þrjú börn á aldr­in­um 6-12 ára eru í ein­angr­un. Eitt smit er í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. Níu smit eru meðal fólks á aldr­in­um 18-29. 19 smit eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára og fimm meðal 40-49 ára. Eitt smit er meðal fólks á aldrinum 50-59 ára. Þrjú smit eru hjá 60-69 ára og eitt meðal fólks á áttræðisaldri.

Á höfuðborg­ar­svæðinu eru 34 smit og 144 í sótt­kví. Eitt smit er á Suður­nesj­um og tveir í sótt­kví. Á Suður­landi eru smit­in þrjú og níu í sótt­kví. Á Aust­ur­landi eru tvö smit og einn í sótt­kví. Á Vest­ur­landi er eitt smit og enginn í sótt­kví. Í hópn­um óstaðsett­ir í hús eru fjögur smit og þrír í sótt­kví. Á Norður­landi eystra er einn í sótt­kví en á Vest­fjörðum eru þrír í sótt­kví. Enginn er með smit á Norðurlandi vestra og þar er heldur enginn í sóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert