Guðni Einarsson
Langur biðlisti er í þyrluflug að gosstöðvunum í Geldingadölum hjá tveimur þyrlufyrirtækjum sem Morgunblaðið ræddi við. Þau fljúga bæði frá Reykjavíkurflugvelli.
Nokkur þyrlufyrirtæki til viðbótar bjóða upp á slíkt útsýnisflug. Erlendir ferðamenn eru í vaxandi mæli farnir að bóka þyrluflug að gosstöðvunum. Flogið er yfir gossvæðið og síðan lent þar sem sést vel til gossins. Farþegar fá að fara út í 15-20 mínútur og njóta útsýnisins og taka myndir áður en farið er aftur í loftið.
Lendingarstaðirnir eru valdir með tilliti til veðurs og vindáttar. Til dæmis er gætt að því að gasmengun frá gosinu leggi ekki yfir staðinn þar sem lent er hverju sinni.
„Það er mikill áhugi fyrir þessu eldgosi. Það er 3-4 vikna biðlisti eftir því að komast í flug. Stundum er veðrið að hrekkja okkur og þá er erfitt að halda áætlun en þegar er gott veður þá náum við að vinna þetta niður. Annars lengist biðin,“ segir Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, í Morgunblaðinu í dag.