Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Bæði sækjast þau eftir að leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.
Samsett mynd
Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík. Kjörfundur hófst í gær og fyrir hann hafði staðið utankjörfundur í nokkra daga.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra takast á um fyrsta sætið í prófkjörinu.
Búast við fyrstu tölum klukkan 19
Þegar er búið að loka fólk inni á 2. hæð í Valhöll og talning er hafin á atkvæðum. Búist er við að fyrstu tölur berist úr prófkjörinu um og upp úr klukkan 19 í kvöld.