Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir eru sammála um að skemmtileg prófkjörsbarátta sé að baki en fyrstu tölur birtust klukkan 19. Guðlaugur leiðir í fyrsta sæti með einungis 98 atkvæða mun.
Eftir að 1.502 atkvæði höfðu verið talin er Guðlaugur Þór í fyrsta sæti með 765 atkvæði í fyrsta sætið og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir í öðru sæti með 1.001 atkvæði í fyrsta til annað sætið en þau takast á um fyrsta sætið í prófkjörinu.
Næstu tölur verða birtar klukkan 21 í kvöld og klukkan 23 (mögulega fyrr), að því er segir á vefsíðu Sjálfstæðisflokksins.
„Það hefur verið í mörg horn að líta hjá mér í þessari prófkjörsbaráttu,“ segir Guðlaugur í samtali við mbl.is og nefnir í því sambandi norðurskautsráðið, njósnamál hjá Dönum og fríverslunarsamninginn við Breta. „Ég hef því þurft að reiða mig mikið á mitt góða stuðningsfólk.“
„Þetta eru auðvitað bara fyrstu tölur og þær hafa alltaf breyst. Þannig að það er engin ástæða til þess að draga of miklar ályktanir,“ segir Guðlaugur og bætir við að hann vonist bara eftir að fá fleiri atkvæði eftir því sem líður á kvöldið.
„Þetta er bara stórt og flott prófkjör og gaman að sjá þessa miklu kjörsókn,“ segir Áslaug Arna.
„Það er bara búið að telja lítið af atkvæðum svo maður bíður bara eftir lokaniðurstöðum,“ segir Áslaug en greidd voru 7.500 atkvæði.
„Ég hlakka mikið til baráttunnar í haust, sama hvernig fer,“ segir Áslaug.