Framboðslisti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var samþykktur á aukakjördæmisþingi sem haldið var rafrænt í dag 5. júní. Prófkjör hafði áður farið fram um efstu 5 sæti listans og gerði kjörstjórn tillögu um önnur sæti listans í samræmi við reglur flokksins.
Oddviti listans er Willum Þór Þórsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Í öðru sæti á eftir honum er Ágúst Bjarni Garðarsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði, í þriðja sæti er Anna Karen Svövudóttir, samskiptafulltrúi og ferðamálafræðingur, í fjórða sæti er Kristín Hermannsdóttir háskólanemi og í fimmta sæti Ívar Atli Sigurjónsson, flugmaður og laganemi.
Framboðslisti Framsóknar í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021:
1. Willum Þór Þórsson, Kópavogi
2. Ágúst Bjarni Garðarsson, Hafnarfirði
3. Anna Karen Svövudóttir, Hafnarfirði
4. Kristín Hermannsdóttir, Kópavogi
5. Ívar Atli Sigurjónsson, Kópavogi
6. Svandís Dóra Einarsdóttir, Garðabæ
7. Ómar Stefánsson, Kópavogi
8. Halla Karen Kristjánsdóttir, Mosfellsbæ
9. Baldur Þór Baldvinsson, Kópavogi
10. Margrét Vala Marteinsdóttir, Hafnarfirði
11. Valdimar Víðisson, Hafnarfirði
12. Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, Garðabæ
13. Einar Gunnarsson, Hafnarfirði
14. Þorbjörg Sólbjartsdóttir, Mosfellsbæ
15. Árni Rúnar Árnason, Hafnarfirði
16. Dóra Sigurðardóttir, Seltjarnarnesi
17. Páll Marís Pálsson, Kópavogi
18. Björg Baldursdóttir, Kópavogi
19. Sigurjón Örn Þórsson, Kópavogi
20. Tinna Rún Davíðsdóttir Hemstock, Garðabæ
21. Einar Sveinbjörnsson, Garðabæ
22. Helga Björk Jónsdóttir, Garðabæ
23. Einar Bollason, Kópavogi
24. Hildur Helga Gísladóttir, Hafnarfirði
25. Birkir Jón Jónsson, Kópavogi
26. Eygló Harðardóttir, Mosfellsbæ