Þrátt fyrir að spáð sé rólegheita veðri í dag koma skil lægðar upp að landinu í kvöld og hið sama er uppi á teningnum annað kvöld. Lægðunum fylgir rigning í öllum landshlutum.
„Rólegheitaveður í dag en allvíða smá skúrir, síst norðaustan til. Í kvöld koma skil lægðar upp að landinu og mun rigna um allt land frá þeim á morgun, miðvikudag. Sama verður svo upp á teningunum seint annað kvöld því þá er von á næstu skilum með vætu og útlit fyrir rigningu í öllum landshlutum á fimmtudag. Úrkoman verður mest þar sem skilin koma að landi en það er sunnan til á landinu.
Að sama skapi verður yfirleitt hlýjast hlémegin fjalla og því verður norðanvert landið yfirleitt með vinninginn í hæstu hitatölunum. Hins vegar er aldrei langt í hafgoluna á þessum árstíma og sjórinn frekar kaldur svo ef hafgolan nær inn á land kælir hún talsvert mikið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.
Í dag er spáð suðlægri eða breytilegri átt, 3-8 metrum á sekúndu. Skýjað og sums staðar smáskúrir en bjart með köflum eystra. Vaxandi austanátt og fer að rigna syðst seint í kvöld. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi.
Á miðvikudag:
Norðaustan 5-13 m/s NV-til en suðlæg eða breytileg átt 3-10 annars staðar. Rigning með köflum og hiti 7 til 14 stig.
Á fimmtudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 en norðaustan 8-15 á Vestfjörðum. Víða rigning, þó síst NA-lands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast NA-til.
Á föstudag:
Norðan- og norðvestanátt með rigningu eða slyddu N-lands fram eftir degi en bjart með köflum syðra. Hiti 3 til 14 stig, hlýjast á S-landi.
Á laugardag:
Suðaustlæg átt og skýjað en úrkomulítið, hiti 6 til 13 stig. Vaxandi austanátt með rigningu S-til um kvöldið.
Á sunnudag:
Norðaustanátt með rigningu víða um land. Svalt fyrir norðan og milt syðra.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðanátt. Allvíða rigning, en lengst af þurrt SV-til. Hiti breytist lítið.