Brim styrkir Bókmenntafélagið um 16 milljónir

Þeir Guðmundur Kristjánsson (t.v.) og Jón Sigurðsson takast í hendur …
Þeir Guðmundur Kristjánsson (t.v.) og Jón Sigurðsson takast í hendur eftir undirskriftina. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hyggst styrkja Hið íslenska bókmenntafélag um 16 milljónir króna næstu fjögur árin, samkvæmt ákvæðum samstarfs- og styrktarsamnings sem undirritaður var í Safnahúsinu við Hverfisgötu í gær.

Markmið samningsins er meðal annars að efla starfsemi og útgáfu Bókmenntafélagsins í þeim tilgangi að styðja og styrkja íslenska tungu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Að sögn Jóns Sigurðssonar, forseta Bókmenntafélagsins, er styrkurinn frá Brimi mikilvæg viðbót við tekjustofna félagsins en það varð fyrir miklu fjárhagstapi þegar kórónuveirufaraldurinn brast á, þar sem húseign í þeirra eigu var á leigu hjá ferðaþjónustufyrirtæki.

Hið íslenska bókmenntafélag hefur verið starfrækt frá árinu 1816 og á sér ríka sögu en félagið var meðal annars hornsteinn í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á sínum tíma.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert