Landsréttur sýknar Arnþrúði af kröfu Reynis

Reynir Traustason og Arnþrúður Karlsdóttir.
Reynir Traustason og Arnþrúður Karlsdóttir. mbl.is/Samsett mynd

Arnþrúður Karlsdóttir, eigandi og útvarpsstjóri Útvarps Sögu, var í dag sýknuð af kröfu Reynis Traustasonar um ómerkingu og miskabótagreiðslu vegna ummæla sem hún viðhafði um Reyni.

Með þessu sneri Landsréttur niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði ómerkt tvenn ummæli og dæmt Arnþrúði til að greiða Reyni 300.000 krónur í miskabætur.

Sagði Reyni hafa lagt heilu fjölskyldurnar og fólk í rúst

Héraðsdómurinn varðaði þrenn ummæli sem Arnþrúður lét falla í útvarpsþætti. Hann ómerkti tvenn þeirra, það voru:

„Hvað heldurðu að hann hafi mörg mannslíf og fjölskylduhamingju á á samviskunni? Bæði frá því sem ritstjóri DV og ritstjóri Stundarinnar og þá stjórnarformaður Stundarinnar.“ 

„Hvað heldurðu að hann hafi mörg mannslíf á samviskunni þar sem hann hefur lagt heilu fjölskyldurnar og fólk í rúst út af athugasemdakerfum sem hann lét með lygafréttum sem að eru framleiddar?“

Ummælin ekki talin tilefnislaus með öllu

Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að ummæli Arnþrúðar hefðu falið í sér gildisdóm og lýst skoðunum fremur en staðhæfingum um raunverulegar staðreyndir miðað við samhengi orðanna.

Litið var til þess að Reynir hefði verið gildandi í fjölmiðlaumfjöllun í áratugi og að „fjölmiðlar undir hans stjórn ekki veigrað sér við að fjalla með hvössum og gagnrýnum hætti um menn og málefni líðandi stundar,“ samkvæmt dóminum. Ummæli Arnþrúðar væru því ekki „tilefnislaus með öllu“.

Landsréttur taldi ummælin einnig hluti af þjóðfélagsumræðu um fjölmiðla og netmiðla. Það væri nauðsynlegt að játa fólki rúmt frelsi til að tjá sig um slíkt. Arnþrúður var sýknuð af öllum kröfum Reynis og málskostnaður felldur niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert