Þingið samþykkti í gær að veita 15 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt, að tillögu allsherjar- og menntamálanefndar. Nú er ljóst að eftirfarandi aðilar eru orðnir íslenskir ríkisborgarar:
- Akila Ayache, f. 1983 í Alsír
- Camille Rainer Ólafsson, f. 1946 í Bandaríkjunum.
- Charlotte Ó. Jónsdóttir Biering, f. 1982 í Suður-Afríku.
- Claudia Nineth Albir Ferrera, f. 1986 í Hondúras.
- Diyam Saeed, f. 2019 á Íslandi.
- Doruk Beyter, f. 1989 í Tyrklandi.
- Isabel Eulalia Pifarrer Mendez, f. 1983 í Mexíkó.
- Joseph Thor Hockett, f. 1963 í Bandaríkjunum.
- Kwaku Bapie, f. 1980 í Gana.
- Marko Blagojevic, f. 1985 í Serbíu.
- Mohamad Moussa Al Hamoud, f. 2002 í Sýrlandi.
- Rana Fjóla Wahba, f. 1999 í Palestínu.
- Rozhbin Kamal Sharif Sharif, f. 1987 í Írak.
- Sohrab Hamidy, f. 1997 í Afganistan.
- Yadiel Smith Encarnacion, f. 2015 í Dóminíska lýðveldinu.
Allsherjar- og menntamálanefnd bárust 209 umsóknir um ríkisborgararétt. Nefndin vinnur úr þessum umsóknum og leggur fyrir þingið lagafrumvarp um að veita tilteknum einstaklingum ríkisborgararétt með lögum.