„Það er spurning hvar við ættum að herða gæslu því að ummál þessa hrauns er ansi mikið og fólk er víða,“ sagði Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurnesjum, spurður hvort mögulega væri þörf á hertri gæslu við gosstöðvarnar í kjölfar fregna af erlenda ferðamanninum sem fór út á hraunið.
„Við erum með landverði, björgunarsveitarfólk og lögreglumenn í kringum svæðið en það verður hreinlega að horfa til þess að fólk átti sig á því að þetta er stórhættulegt.“ Þá segir hann að það að fara út á hraunið sé gífurlega hættulegt og hegðun erlenda ferðamannsins hafi ekki verið til fyrirmyndar.
Þá er opið er að gosstöðvum í dag en fólki verður beint að leið B, þar sem gönguleið A þykir ekki örugg. Lokað var fyrir umferð inn á gossvæðið í Geldingadölum í gær af öryggisástæðum. Sú ákvörðun var tekin í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra eftir að hraun fór að flæða upp úr sunnanverðum Geldingadölum, yfir gönguleið A og niður í Nátthaga. Þá segir Gunnar að gærdagurinn hafi gengið vel, „fólk tók tilmælum og leiðbeiningum býsna vel og það gekk ágætlega“.
„Gönguleið B er leið sem við studdumst við í vor, fyrstu vikur gossins, og við ýmist notuðum þá leið eða gönguleið A,“ sagði hann. „Leið A var lagfærð og gerð greiðfær sem reyndist vel og fækkaði slysum, en leið B er torfærari og aðeins lengri.“
Þá segir Gunnar að leið B, sem opin er í dag, sé í raun meira fyrir vant göngufólk. Gönguleið A hefur verið aðalgönguleiðin að gossvæðinu mestan gostímann, en byrjað var að undirbúa lagningu nýrrar gönguleiðar á svipuðum stað og gönguleið B hefur verið, þ.e. vestan megin í Fagradalsfjalli.
Þá bendir Gunnar á að fyrir þá sem ekki treysta sér upp þessa erfiðari leið sé auðveld gönguleið inn í Nátthaga, en þangað streymir hraunið niður frá Geldingadölum og syðri Meradölum. „Það er í sjálfu sér töluverð upplifun fyrir fólk sem ekki treystir sér til þess að labba upp á fjall.“ Hann segir þó að kaðall sé enn til staðar á brattasta kafla leiðar B frá því í vor og geti fólk því stuðst við hann á leið sinni upp.