Þjónustusvæði Reykjavíkurborgar verða fjögur, rafræn þjónustumiðstöð verður sett á laggirnar og þjónusta við börn og fjölskyldur efld. Þetta er meðal þess sem fyrsta velferðarstefna Reykjavíkurborgar leiðir af sér. Borgarstjórn samþykkti stefnuna á fundi sínum í dag en hún gildir til ársins 2030. Henni fylgir ítarleg aðgerðaáætlun fram til ársins 2025.
Stefnan er hugsuð sem vegvísir fyrir borgarbúa og um leið fyrir starfsfólk í velferðarþjónustu, samkvæmt tilkynningu frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Þá eru stefnumarkandi áherslur velferðarstefnunnar sjö talsins. Undir hverri þeirra eru forgangsáherslur og vel skilgreindar, kostnaðargreindar og tímasettar aðgerðir.
Rauði þráðurinn í gegnum velferðarstefnuna er að öll þjónusta á að vera skipulögð og framkvæmd út frá þörfum og vilja notenda, segir í tilkynningunni.
Að sögn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, formanns velferðarráðs og stýrihóps velferðarstefnunnar áttu hagsmunaaðilar þátt í að móta stefnuna. „Markvisst var leitað til núverandi notenda þjónustunnar og annarra borgarbúa í ferlinu, til þess að fá þeirra sjónarmið að borðinu og óskir þeirra endurspeglast því með beinum hætti í fjölmörgum aðgerðum stefnunnar,“ segir Heiða. Var það meðal annars gert með því að kalla eftir sögum notenda, í þeim tilgangi að draga lærdóm um hvernig bæta mætti þjónustuna og með því að veita starfsfólki velferðarsviðs og hagsmunasamtökum tækifæri á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, meðal annars í gegnum Þekkingardag velferðarsviðs, vinnustofur og fundi.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að þjónusta við börn og fjölskyldur þeirra verður aukin með samhæfingu þjónustu á vegum skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs. Frá 1. janúar 2022 verður hægt að sækja samþætta skóla- og fjölskylduráðgjöf í þjónustumiðstöðvar borgarinnar, sem verða fjórar talsins. Stjórnun skóla, leikskóla og frístundamiðstöðva færist í auknum mæli út í hverfin auk þess að ráðgjöf við foreldra og starfsfólk skóla og leikskóla verður styrkt verulega.
Þá verður rafræn þjónustumiðstöð einnig sett á laggirnar en hún verður fyrsta snerting allra notenda við þjónustu velferðarsviðs. Þar verður boðið upp á móttöku rafrænna umsókna, símaráðgjöf og leiðbeiningar í öllum málaflokkum sviðsins. Það er í samræmi við óskir notenda, að sögn Regínu Ásvaldsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs. „Við lögðum fyrir umfangsmikila aðgengiskönnun í vor fyrir notendur velferðarþjónustu og þar komu fram sterkar óskir um að nálgast þjónustuna með rafrænum hætti. Við erum því að bregðast við því ákalli með stofnun rafrænnar þjónustumiðstöðvar. Við höfum verið í forystu í stafrænum umbreytingum, til dæmis með fjárhagsaðstoðina og munum halda áfram á þeirri braut,“ segir hún.