Blómsveigur lagður á leiði Jóns og Ingibjargar

Alexandra Briem flytur ávarp.
Alexandra Briem flytur ávarp. mbl.is/Jón Helgi

Alexandra Briem forseti borgarstjórnar lagði blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur í dag, í tilefni Þjóðhátíðardagsins.

Alexandra flutti við athöfnina stutt ávarp, flutt var tónlist og tvær stúlkur báru blómakrans að leiðinu þar sem Alexandra tók við honum og lagði á gröfina. Salóme Katrín sá um sönginn að þessu sinni. 

Dagur B Eggertsson borgarstjóri ásamt nýstúdentum.
Dagur B Eggertsson borgarstjóri ásamt nýstúdentum. mbl.is/Jón Helgi
mbl.is/Jón Helgi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert