Breytingar urðu við lestur annarra talna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Haraldur Benediktsson, oddviti flokksins í kjördæminu, fór upp í 2. sætið en Teitur Björn Einarsson, fyrrverandi þingmaður, lækkaði niður í 3. sætið.
Haraldur sóttist eftir 1. sæti á lista flokksins eins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður flokksins, sem leiðir eins og í fyrstu tölum.
Þegar talin hafa verið 998 atkvæði af 2200 skiptast þau þannig:
1. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 644 atkvæði í fyrsta sæti.
2. Haraldur Benediktsson, 440 atkvæði í 1.-2. sæti.
3. Teitur Björn Einarsson, 582 atkvæði í 1.-3. sæti.
4. Sigríður Elín Sigurðardóttir, 392 atkvæði í 1.-4. sæti.