John Snorri Sigurjónsson fjallgöngumaður verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ klukkan eitt í dag. Útförin verður í beinu streymi sem nálgast má hér:
Ekkert hefur spurst til Johns Snorra síðan 5. febrúar síðastliðinn þegar hann týndist á fjallinu K2 í Pakistan, næsthæsta fjalli heims og jafnframt því hættulegasta. John Snorri freistaði þess að verða einn þeirra fyrstu í sögunni til að klífa tind fjallsins að vetri til, en hann var fyrsti Íslendingurinn til að komast á topp fjallsins.
Umfangsmikil leit var gerð að John Snorra og félögum hans sem týndust með honum, en hún bar ekki árangur.