Efla kynningu á íslenskri myndlist erlendis

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Harpa Þórsdóttir, safnstjóri …
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, við undirritunina í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, undirrituðu í dag samstarfssamning um kynningu á íslenskri myndlist erlendis. Samningurinn er liður í því að efla menningarstarf á erlendri grundu og vekja athygli á íslenskri myndlist og menningararfi, að því er segir í tilkynningu Stjórnarráðsins. 

Kynning á íslenskri menningu erlendis er á meðal mikilvægustu verkefna utanríkisþjónustunnar að sögn Guðlaugs Þórs. Þar leika sendiskrifstofurnar lykilhlutverk sem kynningar- og markaðsstofur Íslands og festir samningurinn það hlutverk enn frekar í sessi.

100-150 verk til sýnis á sendiskrifstofum

Samkvæmt samningnum mun Listasafnið að jafnaði leggja til um 100-150 verk úr safneign sinni sem verða til sýnis á sendiskrifstofum Íslands. Verkin verða valin með faglegum hætti og mun Listasafnið vinna áætlun um áherslur á hverjum stað, m.a. með tilliti til markaðssvæðis og tengsla verkanna eða listamannsins við viðkomandi ríki. Utanríkisráðuneytið leggur til sýningarrými fyrir listaverkin á sendiskrifstofum og bústöðum og mun standa fyrir kynningu á verkunum í samstarfi við Listasafnið og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar.   

Utanríkisráðuneytið og Listasafnið hafa starfað saman um áratugaskeið en með samningnum er lagður grundvöllur að auknu og markvissara samstarfi. Að sögn Hörpu markar samningurinn upphaf nýrra tíma í samstarfinu. 

Utanríkisþjónustan, Íslandsstofa og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar hafa að undanförnu unnið náið saman að því að kynna íslenska myndlist erlendis og fundið til þess nýstárlegar leiðir á tímum heimsfaraldursins, m.a. með framleiðslu og dreifingu á rafrænu kynningarefni. Þessi samningur við Listasafnið mun styrkja enn frekar þetta mikilvæga samstarf, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert