Saknað við eldgosið og allar sveitir kallaðar út

Eldgosið á Reykjanesskaga.
Eldgosið á Reykjanesskaga. mbl.is/Árni Sæberg

Allar björgunarsveitir á Suðurnesjum hafa verið kallaðar út, auk leitar- og sporhunda af fleiri svæðum, ásamt öllum björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu, vegna leitar að einstaklingi sem er saknað við gosstöðvarnar í Geldingadölum.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg varð maðurinn viðskila við samferðamann um miðjan dag. Þegar hraðleit á svæðinu skilaði ekki árangri hafi verið aukið við viðbragðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert