Silja Dögg í heiðurssæti í Suðurkjördæmi

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Sigurður Bogi

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er í neðsta sæti lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar til Alþingis. 

Prófkjör Framsóknarflokksins í kjördæminu fór fram um síðustu helgi. Sig­urður Ingi Jóhannsson hlaut yf­ir­burðakosn­ingu í fyrsta sæti en Jó­hann Friðrik Friðriks­son endaði í öðru sæti fyr­ir ofan Silju Dögg Gunn­ars­dótt­ur þing­mann.

Silja skipaði annað sæti í kjör­dæm­inu í síðustu kosn­ing­um og hafði tilkynnt að hún myndi ekki þiggja þriðja sætið. Hún skipar heiðurssæti á lista flokksins þess í stað. 

Eftirfarandi listi var samþykktur á fundi kjördæmisþings fyrr í dag: 

1. Sigurður Ingi Jóhannsson, Hrunamannahreppur

2. Jóhann Friðrik Friðriksson, Reykjanesbæ

3. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Árborg

4. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Reykjanesbæ

5. Njáll Ragnarsson, Vestmannaeyjar

6. Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Hornafjörður

7. Lilja Einarsdóttir, Rangárþing eystra

8. Daði Geir Samúelsson, Hrunamannahreppur

9. Stefán Geirsson, Flóahreppur

10. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, Rangárþing ytra

11. Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, Mýrdalshreppur

12. Inga Jara Jónsdóttir, Árborg

13. Anton Kristinn Guðmundsson, Suðurnesjabær

14. Jóhannes Gissurarson, Skaftárhreppur

15. Gunnhildur Imsland, Hornafjörður

16. Jón Gautason, Árborg

17. Drífa Sigfúsdóttir, Reykjanesbær

18. Haraldur Einarsson, Flóahreppur

19. Páll Jóhann Pálsson, Grindavík

20. Silja Dögg Gunnarsdóttir, Reykjanesbær

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert