Urður Egilsdóttir
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri vill ekki tjá sig um það hvort leit Landssambands lögreglumanna til Persónuverndar, vegna upptaka úr búkmyndavélum lögregluþjónanna tveggja sem voru kallaðir á vettvang vegna sóttvarnabrots í Ásmundarsal, hafi verið óeðlileg.
„Við fengum bréf frá dómsmálaráðuneyti þar sem við erum beðin um að búa til verkferla og setja reglur um það hvernig á að afhenda gögn til eftirlitsnefndarinnar,“ segir Sigríður í samtali við mbl.is en hún segist ætla að skipa fjölbreyttan starfshóp til þess.
„Ég mun hafa samband við Landssamband lögreglumanna svo við náum að hafa sem breiðastan hóp í verkið með sem flestum sjónarmiðum.“
Hún segir að vinna við að skipa hópinn hefjist á morgun.
Verður til skoðunar að hætta notkun á búkmyndavélunum?
„Það finnst mér ósennilegt. Þetta er bæði vörn fyrir borgarana sem við erum að þjóna og lögreglumennina.“