Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti 125 sjúkraflutningum sl. sólarhring en álagið á starfsfólk sjúkrabílanna hefur verið verulegt undanfarna daga. 23 af flutningunum voru forgangsflutningar.
Dælubílar slökkviliðsins fóru í tvö útköll sl. sólarhring. Annað var minni háttar en hitt töluverður heitavatnsleki í Háteigskirkju.