Í dag hefst þrítugasta og fimmta N1-mótið í knattspyrnu, sem haldið hefur verið á Akureyri síðustu ár. Mótið stendur yfir til þriðja júlí. Mótið hefur stækkað með ári hverju og nú var enn á ný slegið met í fjölda þátttakenda sem og í fjölda liða.
2.144 leikmenn eru skráðir til leiks frá 216 liðum. N1 hefur stutt grasrótarstarf knattspyrnunnar um árabil og meðal annars komið að verkefninu Hæfileikamótun, ásamt KSÍ. Lúðvík Gunnarsson stýrir Hæfileikamótuninni og mun hann mæta á mótið til að fylgjast með þátttakendum.
Í fréttatilkynningu er bent á að margir verðandi atvinnumenn og landsliðsmenn hafi tekið sín fyrstu skref á mótinu sem sé „hápunktur íþróttasumarsins“.
Framkvæmd mótsins er í höndum Knattspyrnufélags Akureyrar, KA.
„Það er mikil tilhlökkun hjá okkur í KA fyrir mótinu, rétt eins og fyrri ár, enda er N1-mótið einn af hápunktum sumarsins hjá félaginu og við hlökkum til að taka á móti strákunum og aðstandendum þeirra. Fátt setur sterkari svip á Akureyri en einmitt þegar mörg hundruð keppendur á N1-mótinu mæta til leiks og gleðin og fögnin yfirgnæfa allt annað. Það eru forréttindi að fá að hafa umsjón með þessu frábæra móti og samstarfið við N1, þjálfara, aðstandendur og að sjálfsögðu keppendurna sjálfa er alltaf jafn gott. Það þarf varla að taka það fram, en ég geri það samt, að minna alla á að taka myndir af drengjunum og merkja með #n1mótið á samfélagsmiðlum og halda þannig áfram að skrá knattspyrnusöguna,“ segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA.
„N1-mótið er alltaf eitthvað sem fyllir okkur hjá N1 stolti, gleði og ánægju og við vitum að fram undan eru frábærir dagar þar sem allir munu skemmta sér vel. Við erum afar ánægð með samstarfið við KA, enda undirbúningur allur og umgjörð mótsins með besta móti hjá þessu rótgróna félagi. N1 mun halda áfram, sem fyrr, að styðja grasrótarstarf bæði stráka og stelpna um land allt og við hlökkum til að sjá enn eina kynslóðina hefja leik á þessu frábæra móti meðan við öll fyllum sumarið af fjöri,“ segir Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar og stafrænnar þróunar hjá N1.