Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands gengu í gær formlega frá stofnun sérstaks fasteignafélags sem fær það hlutverk að fara með eignarhald og umsýslu á þeim fasteignum sem nýttar eru í þágu Háskólans.
Fasteignir skólans verða nú færðar í fasteignafélagið sem fær það hlutverk að leigja aðstöðu undir starfsemi HÍ gegn eðlilegu endurgjaldi eða raunkostnaði. „Með þessu er verið að uppfylla þau grunnsjónarmið sem koma fram í lögum um opinber fjármál um sérhæfða eignaumsýslu og fjárhagslegt gagnsæi við húsnæðisrekstur,“ segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Háskóli Íslands nýtir um 100 þúsund fermetra af húsnæði fyrir starfsemi sína í dag í nokkrum tugum bygginga. Til viðbótar leigir háskólinn um fimm þúsund fermetra. Til samanburðar þá nýtir Landspítalinn um 162 þúsund fermetra undir sína starfsemi og Ríkiseignir eru með yfir 500 þúsund fermetra í sinni umsýslu víðsvegar um landið.
Breyttu fyrirkomulagi er ætlað að tryggja að nauðsynleg sérþekking sé til staðar í tengslum við viðhald og umsýslu sérhæfðra eigna háskólans sem eru nátengd starfseminni og koma í veg fyrir að viðhaldsskuld geti myndast í fasteignarekstrinum. Mörg erlend fordæmi eru fyrir því að fasteignir á vegum opinberra aðila séu reknar í sérhæfðum einingum en í því felst töluvert hagræði m.a. vegna stærðarumfangs og sérhæfingar.
„Með stofnun fasteignafélagsins er tryggt að kostnaður við rekstur fasteignanna verður sýnilegur án þess að það komi niður á fjárhagslegri getu háskólans til veita þá þjónustu sem honum er ætlað að veita,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningunni.
Sala fasteigna félagsins mun lúta sama fyrirkomulagi og hjá ríkissjóði og þá mun félagið falla undir almenna eigandastefnu ríkisins um hlutafélög og sameignarfélög.
Stjórn nýja félagsins skipa Daði Már Kristófersson, sem er formaður, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Guðmundur R. Jónsson, Hrafn Hlynsson og Sólrún Böðvarsdóttir. Varamenn eru Siv Friðleifsdóttir og Guðmundur Axel Hansen.