Hraun aftur tekið að renna úr gígnum

Víðfeðm hraunbreiða í Geldingadölum.
Víðfeðm hraunbreiða í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nýtt gosop opnaðist utan í gígnum á Fagradalsfjalli um tíuleytið í gærkvöldi. Hraun streymdi þá úr gígnum, en fyrr um daginn hafði vart sést í jarðeld þar.

Var þá einnig lítill gosórói fram eftir degi, en hann jókst jafnt og þétt eftir því sem leið á kvöldið.

Vel sést í nýja gosopið á aðalvefmyndavél mbl.is af eldgosinu og mátti sjá litla stróka koma af og til upp úr því, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert