„Að okkar mati er of seint brugðist við,“ segir Erna Bjarnadóttir, stofnandi facebookhópsins Aðför að heilsu kvenna, um þá ákvörðun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að flytja rannsóknir á leghálssýnum til Landspítalans.
„Í fyrsta lagi fagna ég því að það eigi að vinda ofan af þessu og að greiningarnar komi til landsins,“ segir Erna í samtali við mbl.is. Samráðsleysi við hópinn sem hún fer fyrir einkenni málið.
Erna spyr sig hvað taki við þangað til eftir áramót:
„Hvernig verður undið ofan af þessu þangað til? Það verður að endurvinna traust á þjónustunni,“ segir hún. „Það hefur aldrei verið sagt frá röðum kvenna, að konur fari ekki í skoðanir sem þær eru boðaðar í en traust er alltaf áunnið. Við þurfum öll á því að halda að þessi þjónusta sé góð og allir upplifi sig örugga að nota hana.“
Leghálssýni eru nú send til Danmerkur til rannsóknar eftir að starfsemin færðist frá Krabbameinsfélaginu til Heilsugæslunnar um áramótin og sú ákvörðun hefur verið gagnrýnd nokkuð harðlega.
Heilbrigðisráðherra ákvað í framhaldinu að hefja viðræður við heilsugæsluna og Landspítalann, í þeim tilgangi að flytja rannsóknirnar heim.
Í gær var svo tilkynnt að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefði tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að því að rannsóknir á leghálssýnum verði fluttar til Landspítalans.
Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins sem situr í velferðarnefnd, segir að málið taki of langan tíma.
„Það á að semja við Krabbameinsfélagið núna og senda þetta síðan á Landspítalann. Það er klárlega brúin sem við getum notað,“ segir Anna.
Hún telur ólíklegt að Landspítalinn verði í stakk búinn til að taka við rannsóknunum um áramót, þar sem þörf er á að stækka húsnæðið svo unnt sé að hýsa starfsemina.
„Þetta er allt í klessu, sama hvar ber niður.“