Ratað yrði í ógöngur ef hróflað væri um of við notkun orðsins maður og á það sérstaklega við í lögum og opinberum texta.
Þetta er niðurstaða Láru Magnúsardóttur dr. phil. í grein í sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem út kom í dag. Tilefni greinarinnar eru „tilraunir til þess að ná fram kynhlutlausri ræðu með því að forðast notkun á orðinu og segja og skrifa þess í stað annað orð, oftast fólk eða manneskja“.
Lára rekur rannsóknir sínar á merkingu orðsins í aldanna rás og segir þær sýna að í lögum sé þegar hlutlaust hugtak, orðið maður, sem ekki geri mannamun eftir kynferði eða öðru.