Samkvæmt Veðurstofunni hefur sjatnað í öllum ám á Norðurlandi en ríkislögreglustjóri ákvað í síðustu viku í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra að lýsa yfir hættustigi vegna vatnavaxta í ám og vötnum á svæðinu.
Samkvæmt Veðurstofunni er vatnsmagnið einna mest nú í Hörgá en það sé ekki mikið miðað við hvernig ástandið var í síðustu viku.
Lögreglan á Norðurlandi eystra segir í samtali við mbl.is að ástandið sé að ganga til baka í rétta átt en gat ekki svarað til um hvort hættustigi almannavarna yrði aflétt á morgun. „Það er alla vega minni hiti og hefur kólnað mikið svo að vatnsmagnið er að minnka,“ segir vaktstjóri hjá lögreglunni.