Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi var samþykktur á fundi Kjördæmisráðs flokksins í kjördæminu sem haldinn var í Valhöll í dag.
Bjarni Benediktsson, formaður flokksins og fjármálaráðherra, leiðir listann.
Í öðru sæti er Jón Gunnarsson, ritari Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður. Í þriðja sæti er Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður og í fjórða sæti er Óli Björn Kárason alþingismaður.
Í fimmta sæti er Arnar Þór Jónsson héraðsdómari, í sjötta sæti er Sigþrúður Ármann framkvæmdastjóri og í sjöunda sæti er Kristín María Thoroddsen bæjarfulltrúi.
Laufey Jóhannsdóttir leiðsögumaður skipar heiðurssæti listans.
1. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra
2. Jón Gunnarsson, alþingismaður
3. Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður
4. Óli Björn Kárason, alþingismaður
5. Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari
6. Sigþrúður Ármann, framkvæmdastjóri
7. Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi
8. Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, samskiptastjóri
9. Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar
10. Hannes Þórður Þorvaldsson, lyfjafræðingur
11. Halla Sigrún Mathiesen, formaður SUS
12. Gísli Eyjólfsson, knattspyrnumaður og þroskaþjálfi
13. Sigríður Heimisdóttir, iðnhönnuður
14. Halla Karí Hjaltested, verkefnastjóri
15. Jana Katrín Knútsdóttir, hjúkrunarfræðingur
16. Dragoslav Stojanovic, húsvörður
17. Inga Þóra Pálsdóttir, laganemi við HÍ
18. Guðfinnur Sigurvinsson, stjórnsýslufræðingur
19. Guðmundur Ingi Rúnarsson, lögreglumaður
20. Sólon Guðmundsson, flugmaður
21. Helga Möller, tónlistarmaður
22. Kristján Jónas Svavarsson, stálvirkjasmíðameistari
23. Björgvin Elvar Björgvinsson, málarameistari
24. Petrea Jónsdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri
25. Ingimar Sigurðsson, vátryggingaráðgjafi
26. Laufey Jóhannsdóttir, leiðsögumaður